Umsóknir um vinnustofur og veggspjaldasýningar í Baden Baden

Vakin er athygli á, að á alþjóðasambandsvefnum er nú hægt að nálgast rafræn eintök af umsóknum fyrir vinnustofur („Workshop proposals“) og veggspjaldasýningar („InfoFair Requests“) á Evrópuráðstefnunni í Baden Baden næsta sumar. Umsóknareyðublöðin þarf að vista til sín og fylla út og senda í tölvupósti fyrir 15. febrúar til Kate York forseta Evrópusambandsins (yorkacm@tiscali.co.uk). Afar áriðandi er að nöfn á vinnustofum séu bæði „grípandi“ og laði að áheyrendur.