Uppstillingarnefnd alþjóðasambandsins hefur lokið störfum

Uppstillingarnefnd alþjóðasambandsins hefur nú lokið störfum og búið er að birta listann yfir hvaða konur verða í stjórn alþjóðasambandsins. Það er ánægjulegt að tilkynna að Sjöfn Sigurbjörnsdóttir í Alfadeild er tilnefnd í uppstillingarnefndina. Við óskum Sjöfn til hamingju með það :-)

Einnig má geta þess að Lyn Schmidt sem talaði á vorþinginu hjá okkur síðastliðið vor, er tilnefnd sem næsti alþjóðaforseti og Marianne Skardeus frá Svíþjóð sem næsti Evrópuforseti. Marianne hlaut European Award í Baden Baden 2011.

Nánar á heimasíðu alþjóðasambandsins.