Útgáfa afmælisrits í tilefni 50 ára afmælis landssambandsins

Tillaga afmælisnefndar:
Að gefa út afmælisrit samtakanna. Í ritinu væri yfirlit yfir sögu félagsins á Íslandi, stofnun og helstu verkefni deilda, félagatal, yfirlit yfir hverjar hafa starfað sem forsetar á Íslandi og yfirlit yfir þátttöku okkar í erlendum nefndum. Okkar tillaga er að eins verði prentuð örfá eintök, ef einhver, að öðru leyti verði ritið rafrænt.

Á framkvæmdaráðsfundi 7. september síðastliðinn var skipuð nefnd til að vinna að þessu verkefni. Í henni eiga sæti:

Pernilla Rein, Iotadeild, formaður
Lee Ann Maginnis; Nýdeild (en hún átti sæti í afmælisnefnd)
Sigrún Klara Hannesdóttir, Alfadeild
SIgrún Jóhannesdóttir, Deltadeild