Viltu gera breytingu á reglugerð DKG?

Reglugerð landsambandsins er ósamþykkt, en samþykkt var á landssambandsþinginu 2011 að gefa deildum kost á athugasemdum við hana áður en hún verður borin upp til samþykktar á landsambandsþinginu 2013. Nú er fresturinn til að koma með þessar athugasemdir alveg að renna út, eða þann 4. febrúar næstkomandi. Félagskonur þurfa því að hafa hraðar hendur ef ætlunin er að nýta þetta tækifæri. Reglugerðina er að finna hér á vefnum og athugasemdum skal koma til Auðar Torfadóttur á netfangið audurtorfa@gmail.com.