Vorþingi 2014 lokið

Hressar DKG konur á vorþingi
Hressar DKG konur á vorþingi
Vorþing landssambands DKG var að þessu sinni haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði laugardaginn 10. maí. Þingið var vel sótt en rúmlega 60 konur sóttu þingið. Yfirskrift þingsins var Skóli á nýjum tímum, lýðræði, sköpun, tækni. Erindin fjölluðu öll á einn eða annan hátt um þetta efni og öllum skólastigum voru gerð skil. Auk erindanna voru tónlistaratriði sem báru fjölbreyttu menningarlífi Ísfirðinga gott vitni.

Fyrsta erindið bar heitið Upplýsingatækni og nýir miðlar í skólastarfi en þar fjallaði Dr. Svava Pétursdóttir  um uppýsingatækni í skólastarfi frá ýmsum hliðum. Fróðlegt var að heyra hvernig samfélagsmiðlar geta nýst í skólastarfi og að kynnast því hvernig miðill eins og Facebook getur verið vettvangur þar sem kennarar styðja hvern annan í starfi. Á þessari slóð eru glærur Svövu.

Jóna Benediktsdóttir aðstoðarskólastjóri og Guðríður Sigurðardóttir kennari sem báðar starfa við Grunnskólann á Ísafirði sögðu frá nemendaþingi sem haldið var við skólann. Áhugavert var að heyra hvernig staðið var að þinginu, því fylgt eftir og síðan unnið úr því. Það verður fróðlegt að fylgjast með þróun þessa verkefnis í framtíðinni.

Albertína F. Elíasdóttir verkefnisstjóri FabLab á Ísafirði sagði frá möguleikum FabLab smiðjunnar til að skapa og hanna hluti frá upphafi til enda. Í erindinu sýndi hún einnig hluti sem hafa orðið til í smiðjunni. Ljóst er að FabLab eru engin takmörk sett.

Síðasta erindi dagsins hélt Elsa María Thompson skólastjóri heilsuleikskólans Laufáss á Þingeyri. Hún sagði frá skólastarfinu og fjölbreyttu samstarfi hans við grunnskólann á Þingeyri og aðra leikskóla í Ísafjarðarbæ.

Í lok dagsins var svo boðið uppá tvenns konar sögugöngur sem báðar enduðu í Safnahúsinu á Ísafirði þar sem Iota konur voru með stutta móttöku. Síðasta atriðið á góðri dagskrá var svo hátíðarkvöldverður í Tjöruhúsinu þar sem „rúsínan í pylsuendanum“ var söngatriði þar sem ein af framreiðslustúlkunum, Salóme Katrín Magnúsdóttir, söng fyrir okkur. Því má bæta við að Salóme er nemandi í Menntaskólanum á Ísafirði og var fulltrúi hans í Söngvakeppni framhaldsskólanna í ár.

Myndir frá þinginu eru komnar í myndaalbúmið.