Samskipta- og útgáfunefnd
Landssambandsstjórn skipar að lágmarki þrjár félagskonur í samskipta- og útgáfunefnd til tveggja ára að fenginni tillögu framkvæmdaráðs, þar af eina sem formann. Nefndin skiptir með sér verkum að öðru leyti.
- Nefndin annast útgáfu og dreifingu á fréttablaði landssambandsins og útgáfu á öðru efni sem landssambandsstjórn felur henni.
- Nefndin sér um að efla tengls milli félagskvenna, deilda og landssambands.
- Nefndin hvetur til samskipta við utanaðkomandi hópa og gerir tillögur að leiðum til að kynna félagið.
- Nefndin annast umsjón vefs ásamt vefstjóra og landssambandsstjórn.
Árið 2023–2025 skipa eftirfarandi konur nefndina:
Formaður: Guðrún Ásgeirsdóttir, Zetadeild
Sigríður Herdís Pálsdóttir, Zetadeild
Guðmunda Vala Jónasdóttir, Zetadeild
Síðast uppfært 24. ágú 2023