- 22 stk.
- 02.05.2014
Etadeild hélt aðalfund sinn 29. apríl á Hótel Natura. Guðbjörg Sveinsdóttir forseti heiðraði okkur með nærveru sinni, tók þátt í inntökuathöfn og flutti ávarp. Nærvera hennar var mjög kærkomin. Þrjár konur voru teknar inn og aðrar þrjár verða teknar inn í haust. Ný stjórn var kosin og formaður er Bryndís Guðmundsdóttir. Með henni í stjórn sitja Anna Sigríður Pétursdóttir, Kristín Helga Guðmundsdóttir, Magnea Ingólfsdóttir og Stefanía V. Stefánsdóttir. Við áttum svo saman gott spjall yfir góðum veitingum.