08.10.2009
Undir flokknum Tenglar hér á vefnum er kominn tengill í yfirlit yfir heimasíður allra landssambanda sem finna má
á alþjóðasambandssíðunni. Auk ýmiss konar fróðleiks um starfsemi sambandanna má einnig oft finna fréttabréf (News)
viðkomandi landssambanda á þessum síðum. Nýútkomið er t.d. fréttabréf þeirra í Arkansas sem lesa má á vefnum. Endilega skoðið hvað er að frétta hjá DKG systrum okkar vítt og
breitt um heiminn.
Lesa meira
06.10.2009
Við óskum Iotadeildinni til hamingju með að vera búnar að klára að setja upp útlitið á vef deildarinnar. Mynd deildarinnar er
þyrnirós en hún vex villt á Vestfjörðum (og víðar) og er einskonar „þjóðarblóm“ Vestfirðinga :-)
Lesa meira
25.09.2009
Nýtt eintak af Euforia er nú komið út og er aðgengilegt hér á vefnum undir krækjunni Rafræn
útgáfa. Á sama stað má einnig nálgast glærur og krækjulista frá Director General Arni Hole. Ministry of Children and Equality í
Noregi í tengslum við fyrirlestur sem hún flutti á Evrópuþinginu í Osló síðastliðið sumar.
Lesa meira
22.09.2009
/*
Fimmtudaginn 24.september 2009 verður vinnufundur um upplýsingamál DKG
Lesa meira
07.09.2009
Á degi læsis er fólk hvar sem er á landinu hvatt til að lesa upp fyrir hvert annað, segja sögur, fara með ljóð eða á annan
hátt nota málið til ánægjulegra samskipta.
Lesa meira
11.08.2009
Evrópuþing Delta Kappa Gamma fór fram í Osló í Noregi dagana 5.-8. ágúst. 14 konur héðan frá Íslandi sóttu
þingið og bar þeim saman um að norsku gestgjafarnir hefðu tekið vel á móti okkur og þingið verið áhugavert.
Lesa meira
31.07.2009
Á landssambandsþinginu í maí síðastliðnum var kosin ný stjórn Delta Kappa Gamma fyrir tímabilið 2009-2011. Ingibjörg
Jónasdóttir í Gammadeild var kosin formaður en upplýsingar um stjórnina má finna hér á vefnum undir Stjórn
og nefndir.
Lesa meira
25.07.2009
Eins og áður hefur verið fjallað um hér á vefnum kemur sumarblað (júlí/ágúst) News fréttablaðsins einungis
út í rafrænu formi.
Lesa meira
25.07.2009
Nýverið var hannað og tekið í notkun nýtt merki samtakanna. Það er til í nokkrum útfærslum og er aðgengilegt í hárri
upplausn til útprentunar, en einnig í lægri upplausn til notkunar á vef. Merkin (ásamt öðrum merkjum samtakanna) má nálgast á
vef alþjóðasambandsins.
Lesa meira
23.07.2009
Eins og komið hefur fram hér á vefnum fyrr á þessu ári, verður Evrópuþing Delta Kappa Gamma haldið í Osló í Noregi
dagana 5.-8. ágúst næstkomandi.
Lesa meira