31.01.2014
Fundur í Eta-deild – fundarboð:
Laugardaginn 8. febrúar n.k. verður haldinn morgunverðarfundur í Eta deild. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli og hefst kl. 10:30. Salurinn sem
við verðum í heitir Háteigur og er á fjórðu hæð. Þar fáum við góðan morgunverð fyrir kr. 1500.
Gestur fundarins verður Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, og mun hún fjalla um auðlindir í íslenskri
ferðaþjónustu - með áherslu á menntun, menningu og mannauð. Á eftir verður tími fyrir umræður og fyrirspurnir.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Auðar Torfadóttur fyrir fimmtudaginn 6. febrúar.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Lesa meira
27.11.2013
Jólafundur Eta-deildar verður þriðjudaginn 3. desember kl. 20-22 í Skipholti 37, þriðju hæð, Listgreinahúsi
Menntavísindasviðs HÍ.
Margar okkar eiga góðar minningar þaðan frá jólafundum í umhverfi Stefaníu. Húsið verður opnað kl. 19.45 og við
þurfum að læsa fljótlega upp úr kl. 20. Ef einhver kemur eftir það ætti hún að hringja í 848-2853 (Kristín).
Að þessu sinni verður fyrirkomulag jólafundar öðruvísi en venja hefur verið. Við borðum okkar kvöldmat heima en fáum
hlýjar og laufléttar veitingar með jólastemmingu í félagsskap Eta-systra.
Nýjar jólabækur verða til umræðu. Til okkar kemur Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir og les úr bók sinni Stúlka með
maga.
Kostnaður fyrir hverja okkar er að hámarki 1500 kr. Munið að hafa með ykkur reiðufé.
Við vonum að sem flestar okkar njóti saman þessarar aðventustundar.
Með kveðju
Undirbúningshópurinn
Lesa meira
07.11.2013
Annar fundur vetrarins verður haldinn miðvikudaginn 13. nóvember 2013 kl. 18.00 – 20:00 í Norðlingaskóla, Árvaði 3, 110
Reykjavík.
Dagskrá
• Fundur settur
• Kynninga á nýjum kennsluháttum og nemendalýðræði á unglingastigi
í Norðlingaskóla með áherslu á „flipped classroom“
• Súpa og heimabakað brauð á kr. 1.800 kr.
• Orð til umhugsunar
• Skoðunarferð um Norðlingaskóla fyrir þær sem vilja
Við vonum að sjá ykkur sem allra flestar.
Þátttaka tilkynnist til Auðar Torfadóttur á audurtorfa@gmail.com
Kærar kveðjur,
Sif, Magnea, Bryndís, Brynhildur og Ágústa
Lesa meira
03.10.2013
Kæru Etasystur.
Fyrsti fundurinn okkar verður haldinn miðvikudaginn 9. október
kl. 17:30 stundvíslega (fundarstaður opnar kl. 17:15) í stofu H-101 í nýbyggingu menntavísindasviðs HÍ.
Gengið er inn af bílastæðinu við Háteigsveg og beint inn ganginn. Fyrir þá sem þekkja til er stofa H-101 innan við Skriðu og
Bratta.
Dagskrá:
1. Fundur settur
2. Orð til umhugsunar
3. Erindi Salvarar Nordal sem hún nefnir: Stjórnaskrármálið. Mistök og lærdómar.
4. Umræður.
5. Fundi slitið.
Lesa meira
22.09.2013
Nú er vetrarstarfið senn að hefjast og fyrsti fundurinn okkar verður miðvikudaginn 9. október kl. 17:30. Það er Salvör Nordal sem flytur okkur erindi
um stjórnaskrármálið og afdrif þess.
Fundardagar vetrarins og fundartímar (með fyrirvara) verða sem hér segir:
1. fundur miðvikudaginn 9. okt. kl. 17:30
2. fundur mánudaginn 4. nóv. kl. 18:00
3. fundur, jólafundur, þriðjudaginn 3. des. kl. 20:00
4. fundur laugardaginn 8. feb. kl. 10:30
5. fundur fimmtudaginn 13. mars kl. 18:00
6. fundur, aðalfundur, miðvikudaginn 23. apríl kl. 18:00
Fundarsókn gæti verið betri, en við erum ekki eina deildin sem það á við. Það er ljóst að deildarkonur hafa mörg járn
í eldinum og í mörg horn að líta og svo getur ýmislegt óvænt komið upp á. En stjórnin er með tillögu um að hver og ein
stefni að því að mæta á a.m.k. þrjá fundi af sex.
Stjórnin hefur komið sér saman um að þema vetrarins taki mið af 7. grein markmiða DKG samtakanna sem hljóðar svo:
Að fræða félagskonur um það sem er efst á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og
stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna.
Við höfum verið iðnar við að ræða menntamálin og ekki búnar að segja skilið við þau, enda koma þau víða
við sögu. En það er líka áhugavert að skoða önnur þjóðfélagsmál sem eru ofarlega á baugi og snerta alla. Hugmyndir
sem hafa komið fram á stjórnarfundum eru t.d. sjálfsmynd þjóðar, sjálfsmynd fólks í menntageiranum, umhverfismál,
sjálfbærni, fjölmenning, grunnstoðirnar í leik-, grunn- og framhaldsskólalögunum, Íslendingar í augum annarra,
alþjóðamál og fleira mætti nefna.
Áfram verður haldið með skiptingu í hópa utan um skipulagningu funda og verður skrá yfir hópa send út innan skamms. Við viljum
stefna að því að hafa mismunandi fundarstaði, fundartíma og mismunandi tegundir af veitingum.
Lesa meira
18.05.2013
Kæru Etasystur.
Það var leitt að þurfa að fresta fundi síðast vegna ónógrar þátttöku, en við gefumst ekki upp og fundurinn verður
haldinn fimmtudaginn 30. maí kl. 18-20 í Betrunarhúsinu (engin hætta á ferðum!) Garðatorgi við hliðina á versluninni
Víði.
Gestur okkar verður Gerður Óskarsdóttir sem hefur sérsniðið erindi fyrir okkur sem hún gefur heitið:
Fordómar við skil skólastiga?
Niðurstöður úr rannsókn á skilum leik- og grunnskóla og grunn- og framhaldsskóla.
Það verða léttar og ódýrar veitingar á borðum. Tilkynningar um þáttöku og afboðanir þurfa að berast í
síðasta lagi 28. maí. Það verður hóað í ykkur aftur þegar nær dregur.
Hafið það sem allra best um hvítasunnuhelgina.
Kveðja f.h. stjórnar
Auður
Lesa meira
27.02.2013
Sælar kæru Etasystur.
Hér kemur dagskrá næsta fundar sem haldinn verður þriðjudaginn 5. mars kl. 18:00-20:00 í Hannesarholti Grundarstíg 10:
Fundur settur.
Orð til umhugsunar: Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir.
Inntaka nýs félaga Önnu Sigríðar Pétursdóttur.
Ragnheiður staðarhaldari í Hannesarholti segir okkur frá húsinu og þeirri starfsemi sem þar mun fara fram.
Lesa meira
29.01.2013
Fundur í Eta-deild Delta Kappa Gamma
Dagur: Mánudagur 4. febrúar
Staður: Skipholt 37 - Stofa 303 á 3ju hæð, (lyfta).
Stund: 18:00 – 20:00 (Kristín Ó verður í anddyri frá 17.45-18.10. Sími: 848-2853)
Klæðnaður: Þægilegur fatnaður, sem hamlar ekki hreyfigetu og mjúkir skór.
Verð kr: 1000-1200 (Munið að taka lausafé, við getum ekki tekið kort.)
Dagskrá:
1. Orð til umhugsunar: Guðbjörg Vilhjálmsdóttir
2. Pikknikk á miðvetri
3. Dans í gegnum lífið í orði og verki: Guðbjörg Arnardóttir
Hópur: Stefanía, Ósa, Kristín Ágústa, Hafdís, Guðbjörg og Brynhildur Anna
Skráið þátttöku hjá brynhildur.a.ragnarsdottir@reykjavik.is –fyrir föstudaginn 1. febrúar.
Lesa meira
22.01.2013
Kæru Etasystur.
Gleðilegt ár og þakka ykkur samstarf og samveru á liðnu ári. Nú
nálgast næsti fundur, en hann verður haldinn mánudaginn 4. febrúar kl.
18:00. Nánar verður sagt frá fundarefni og fundarstað innan tíðar, en spurst hefur að þetta verði fundur með léttu ívafi til
að lyfta okkur upp úr vetrardimmunni!
Það eru nokkur atriði sem mig langar að minna á. Það eru í boði alls konar styrkir sem vert er að gefa gaum. 1. febrúar ár hvert
rennur út umsóknarfrestur um styrk sem DKG konum í meistara- eða doktorsnámi stendur til boða. Annars vegar $8000 til meistaranáms og hins vegar $10000 til
doktorsnáms. Umsóknareyðublað með upplýsingum má finna á
slóðinnihttps://mail.google.com/mail/?tab=wm#search/eyglob%40unak.is/13c407dba87a7028
Lesa meira
25.11.2012
Kæru Etasystur.
Hér með fylgir dagskrá jólafundarins. Kirsten tekur við skráningu og afboðun (kirsten@verslo.is). Hún þarf að skila
áætluðum fjölda til veitingastaðarins föstudaginn 30. nóvember og endanlegri tölu 3.
desember.
Jólafundur Etadeildar verður haldinn þriðjudaginn 4. desember kl.
19:00 á veitingastaðnum Satt, Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir) Nauthólsvegi 52.
Gestur fundarins verður frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Lesa meira