26.11.2015
Jólafundur Eta deildarinnar
Þriðjudaginn 1.desember kl.18.00 20.00
Hótel Natura, salur 9 við Nauthólsveg
Dagskrá:
Jólahugvekja
Snittur, kaka og heitt kakó
Jólatónlist og söngur
Eyrún Ísfold Gísladóttir sér um harmonikkuleik
Upplestur rithöfundar
Auður Jónsdóttir les úr bók sinni
Gjald: 3.600
Skráning fyrir 29. nóv hjá annamagnea@borgarbyggd.is
Lesa meira
13.09.2015
Kæru Eta systur !
Munið fundinn á miðvikudag 30. september kl. 18:00 - 20:30!
Fundarstaður Grand hótel - fundarherbergi á efri hæð.
Í boði verður réttur dagsins á 2500 krónur !
Lesa meira
15.04.2015
Kæru Etasystur!
Síðasti fundur þessa starfsárs verður haldinn
þriðjudaginn 28. apríl kl. 18:30 – 21:00 á Grand hóteli við Sigtún.
Gestur fundarins verður Hulda Þórisdóttir,
doktor í félagslegri sálfræði og kennari við Háskóla Íslands.
Umfjöllunarefni er umræðuhefðin í samfélaginu.
Orð til umhugsunar flytur Magnea Ingólfsdóttir.
Tilkynningar stjórnar.
Önnur mál.
Kjúklingaréttur – kaffi og konfekt á 2500 krónur !
Hlökkum til að eiga saman góða stund.
Vinsamlega tilkynnið mætingu/forföll sem fyrst í netfang bryngu@isl.is
Með kærri kveðju,
Stefanía Valdís, Magnea, Kristín Helga, Bryndís, Anna Sigríður.
Lesa meira
02.03.2015
Sælar kæru Etasystur !
Takk fyrir góðan fund í FB. Þar nutum við gestrisni Guðrúnar Hrefnu í veitingum og aðstöðu og andanum lyftu
þær Margrét Friðriksdóttir með Velúr-ljóðum Þórdísar Gísladóttur og Auður Styrkársdóttir
með fróðleik um Kvennasögusafn, aðdraganda þess að íslenskar konur fengu kosningarétt og upplýsingum um viðburði sem efnt er til
í tilefni aldarfmælis kosningaréttarins.
Með hækkandi sól og betri tíð líður svo að næsta fundi, þeim fimmta á starfsárinu, sem
áætlaður er fimmtudaginn 19. mars kl. 18:00 - 20:30. Staðsetning tilkynnt síðar.
Fundurinn er í umsjá hóps 4 en hann skipa:Þórunn Blöndal, Auður Torfad., Brynhildur Anna, Ingibjörg Möller
og Sigríður Heiða. Sjá hlutverk hópa í viðhengi !
Ég minni á vorþingið 9. og 10. maí hér á höfuðborgarsvæðinu, auglýst innan skamms og hvet ykkur
til að fara inn á heimasíðu og fésbókarsíðu DKG.
Veffangið er: http://dkg.muna.is/eta/
Lesa meira
29.01.2015
Fundur í Etadeild miðvikudaginn 4. febrúar 2015
kl. 18:30-20:30 haldinn í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti,
setustofa kennara við hlið kennarastofu
(inngangur frá Austurbergi, til vinstri inn breiðan gang).
Dagskrá fundar:
Fundur settur
Orð til umhugsunar: Margrét Friðriksdóttir skólameistari MK
Gestur fundarins Auður Styrkársdóttir forstöðukona Kvennasögusafns Íslands flytur erindi: 100 ára kosningaréttur
kvenna á Íslandi
Inntaka félaga
Önnur mál
Lesa meira
17.11.2014
Senn líður að jólafundi sem að þessu sinni verður sameiginlegur með Kappadeild.
Tilfærsla varð á dagsetningu frá því sem ráðgert var í fundaplani vetrarins og þótti við hæfi
að efna til hátíðarfundar á fullveldisdaginn, mánudaginn 1. desember kl. 18:00! Staðsetning er í
Hannesarholti því sögufræga og fallega húsi þar sem við höfum átt góðar stundir og húsráðandi er Ragnheiður
okkar Etasystir.
Ef ég ekki að umgjörð öll, aðbúnaður og veitingar verða eins og best verður á kosið
svo ástæða er að hlakka til.
Lesa meira
27.10.2014
Sælar ágætu Eta systur.
Mánudaginn 3. nóvember kl. 18:00 verður annar fundur starfsársins og að þessu sinni fáum við inni í
húsakynnum Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands að Aragötu 9.
Gestur okkar verður Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur og kennari við HÍ, sem ætlar að
miðla okkur af þekkingar- og reynslubrunni sínum. Sigurbjörgu þekkja flestir úr fjölmiðlum og af þátttöku í
þjóðmálaumræðu.
Boðið verður upp á græmetislasagna frá Bergson veitingahúsi á sanngjörnu verði. Við fengum tilboð og
því ekki auðvelt að gefa upp nákvæmt verð … en því fleiri sem mæta þeim mun hagstæðara !!
Vinsamlega hafið handbæra peninga til að greiða fyrir matinn.
Lesa meira
25.09.2014
Kæru Eta systur!
Fyrsti fundur Eta deildar verður laugardaginn 4. október og hefst með léttri strandgöngu um Sjálandshverfið í Garðabæ. Við hittumst
klukkan 10.30 við Sjálandsskólann og gerum ráð fyrir að ganga í um klukkutíma. Að því loknu njótum við
hádegishressingar og fundaraðstöðu við Löngulínu.
Við leggjum drög að vetrarstarfinu og njótum þess að vera saman.
Kostnaður vegna veitinga verður í algjöru lágmarki.
Nánari upplýsingar munu berast ykkur tímanlega fyrir fundinn 4. okt.
Næstu fundir eru áætlaðir mánudaginn 3. nóvember kl. 18:00 og jólafundur þriðjudaginn 2. desember. Við ræðum það
frekar á fyrsta fundinum.
Takið daginn frá og látið vita um þátttöku í netfang bryngu@isl.is
Kærar kveðjur,
f.h. stjórnar
Bryndís Guðmundsdóttir
Lesa meira
11.04.2014
Sælar kæru Etasystur.
Aðalfundur Etadeildar verður haldinn á Hótel Natura (áður Loftleiðahótel) þriðjudaginn 29. apríl og hefst stundvíslega kl.
18:30.
Dagskrá:
1. Fundur settur.
2. Fundargerð síðasta fundar.
3. Orð til umhugsunar.
4. Aðalfundarstörf: Skýrsla formanns. skýrsla gjaldkera, kosning nýrrar stjórnar.
5. Inntaka nýrra félaga.
6. Borðhald þar sem við blöndum geði og höfum það skemmtilegt saman.
Tvíréttuð máltíð kostar kr. 2500.
Vinsamlegast boðið komu ykkar eða afboðið fyrir mánudaginn 28. apríl. Ef einhver lumar á stuttu atriði eða leik, væri slíkt vel
þegið.
Bestu kveðjur
f.h. stjórnar
Auður
Lesa meira
06.03.2014
Kæru Etakonur
Mánudaginn 10. mars kl. 18:00 er boðað til fundar í Hannesarholti.
Dr. Jóhanna T. Einarsdóttir og Ingibjörg Símonardóttir ætla að segja okkur frá niðurstöðum langtímarannsóknar um
tengsl málþroska við upphaf grunnskóla og námsgengi síðar á ævinni.
Sophie Kofoed-Hansen mun flytja okkur orð til umhugsunar.
Matráður Hannesarholts sér um viðurgerning, böku og kaffi sem kostar kr. 2.500 á mann.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til undirritaðrar á netfangið gudhre@gmail.com fyrir föstudaginn 7. mars.
f. h. undirbúningsnefndar, en hana skipa Guðrún, Jóhanna, Sophie, Kirsten og Ragnheiður,
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir
Lesa meira