Stefna - Markmið - Sýn

Markmið, stefna og sýn Zetadeildar er í samræmi við markmið, stefnu og sýn alþjóðasamtaka Delta Kappa Gamma sem eru eftirfarandi:

Stefna samtakanna:

Alþjóðasamtökin Delta Kappa Gamma stuðla að auknum fræðilegum og persónulegum þroska kvenna í fræðslustörfum og gæðum í menntun og uppeldisstörfum.

Markmið samtakanna:

Að stuðla að alþjóðasamstarfi kvenna í fræðslustörfum.

Að heiðra konur sem standa eða hafa staðið framarlega á sviði menntamála/fræðslumála eða eru að vinna markverð störf í þágu þeirra.

Að efla starfsáhuga og stöðu kvenna í fræðslustörfum.

Að stuðla að æskilegri lagasetningu og styðja framgang hvers konar viðleitni til hagsbóta fyrir menntamál/fræðslumál almennt og fyrir konur í fræðslustörfum.

Að veita konum, sem skara fram úr í menntamálum, styrki til framhaldsnáms í háskóla og styrkja konur í fræðslustörfum utan samtakanna.

Að efla persónulegan og faglegan þroska félagskvenna og hvetja þær til virkni.

Að fræða félaga um það sem efst er á baugi í efnahagsmálum, félagsmálum, stjórnmálum og menntamálum og stuðla með því að vaxandi skilningi og virkri þátttöku þeirra í samfélagi þjóðanna.

Sýn Delta Kappa Gamma kvenna er að vera:

Forystukonur í fræðslustörfum til áhrifa á menntun um allan heim.


Síðast uppfært 10. maí 2021