Fundargerð og afmælishátíð
27.10.2015
Fundargerð síðasta fundar er komin á vefinn og svo minnum við á afmælishátíðina og hvetjum félagskonur til að mæta.
Stórafmæli DKG verður haldið hátíðlegt laugardaginn 7. nóvember næstkomandi þegar 40 ár eru liðin frá stofnun samtakanna hér á landi. Nú hafa tæplega 80 konur skráð sig á hátíðarhöldin en takmarkið er að 100 konur mæti!
Drög að dagskrá.
Málþing
Kl. 14-16. Unga nútímakonan. Málþing þar sem við fáum fjórar kjarnorkukonur úr ýmsum geirum samfélagsins til að segja okkur frá sinni sýn á framtíðina. Málþingið verður haldið í Þjóðarbókhlöðunni við Birkimel. Fundarstjóri: Kristín Jónsdóttir.
Móttaka
Kl. 17.30 Móttaka í boði mennta- og menningarmálaráðherra.
Hátíðarkvöldverður
Kl. 18.30--- Hátíðarkvöldverður í Borgartúni (Rúgbrauðsgerðinni) með skemmtiatriðum og happdrætti
Öll þessi frábæra dagskrá kostar félagskonur einungis 4900 krónur allt með talið! Þátttöku þarf að tilkynna til formanns afmælisnefndar, Sigrúnar Klöru (sigrunklarah@gmail.com)
Greiða skal þátttökugjaldið inn á reikning landsambandsins: Kt. 491095-2379. Reikn. Nr. 546-26-2379 og setja nafnog deild í skýringarreitinn.